FRÉTTIR & TILKYNNINGAR

17 Mar, 2023
Innköllun á Pestó vegna innihaldslýsingar. Við þurfum að innkalla vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes. Parmesan osturinn sem er notaður í pestóið frá okkur inniheldur lýsósím sem er ensím unnið úr eggjum. Þessar upplýsingar koma ekki fram í innihaldslýsingunni. Að öllu öðru leyti er varan í lagi. Upplýsingar um vöruna Vörumerki: Brauð & Co Vöruheiti: Pestó Framleiðandi: Brauð & Co Innflytjandi: Á ekki við Framleiðsluland: Ísland Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: bf. 27.03.23 Geymsluskilyrði: Kælivara 2-4°C Dreifing: Útsölustaðir Brauð & Co Við erum að framleiða nýja miða með réttum upplýsingum og pestóið okkar kemur aftur í búðir eftir helgi.  Við biðjumst velvirðingar á þessu. Brauð & Co
Share by: